Snocross Stelpur
Vélsleða umboð
Verslanir
21.04.2010 00:29:33 / Kristín

Keppnin á Fjarðarheiði

Þá er annarri umferð í Íslandsmeistaramótaröðinni lokið en hún fór fram á Fjarðarheiði fyrir austan laugardaginn 17. apríl. Dagurinn leit ekki allt of vel út til að byrja með þar sem veðrið var frekar vafasamt. Það var mjög þétt snjókoma, töluverður vindur  og þar af leiðandi afleitt skyggni. Engin lét veðrið angra sig og voru allir í miklu stuði enda skemmtilegur dagur framundanJ En áður en fyrsta heat-ið átti sér stað rættist verulega úr veðrinu og kom þetta geggjaða veður. Sól og blíða.
Brautin var svipuð og á Mývatni þó svo aðeins minna hafi verið um palla. Hins vegar voru þeir bættir upp með fleiri háum úbsum þannig það var tekið vel á í brautinni. Hörku barátta var í öllum flokkum og lögðu allir allt í brautina.
Það var allt að gerast í kvennaflokknum en við keyrðum með sportflokki og unglingaflokki. Andrea Dögg tók sama fíling á þessa keppni og ég gerði á Mývatni. Það er að segja að keppa á þremur sleðum þar sem allt var ekki að ganga eins og áætlaði þegar kom að keppnisgræjunni. Strákarnir ekkert smá almennilegir að aðstoða unga dömu í vanda þar sem Jonni lánaði henni sinn í öðru heat-i og Palli sinn í þriðja heat-i. Það vantaði því ekki samheldnina á keppnistað líkt og minnst var á frá síðustu keppni líka. Allir voru að hjálpast að og hvetja hvort annað. Það er stór hluti af öllu batteríinu að það sé til staðar og það er sko til staðar. Enda frábært lið á ferðJ
Keppnin fór mjög vel fram og var rosalega vel af henni staðið. Allir voru mjög hressir og með góða skapið í fyrirrúmi. Það var mikið action í brautinni og gaman verður að endurtaka leikinn á Snæfellsjökli í júní;)

Myndir frá keppninni af okkur stelpunum má sjá hér að neðan.




» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2010 23:36:13 / Kristín

Keppnin á Mývatni 2010

Þá er fyrsta snocrosskeppninni í vetur lokið. Það var rosalega vel af keppninni staðið og fengum við frábært veður. Allir komu með góða skapið og var stemmningin ótrúlega góð. Brautin var rosa flott og er nokkuð vægt til orða tekið að segja að hún hafi verið krefjandi enda bauð hún upp á frábært show fyrir áhorfendur. Nokkuð var um að keppendur flugu ýmist á sleðunum eða af honum með miklum tilþrifumJ
Mikil barátta var á milli Jonna og Bjarka í meistaraflokki sem myndaði rafmagnaða stemmningu á meðal áhorfenda
J Við vorum tvær stelpurnar sem vorum að keppa í kvennaflokki (ég og Andrea Dögg) og kom Andrea mjög sterk inn en við keyrðum með strákunum í sportflokknum.
Við lentum báðar hins vegar í bilunum á sleða en það var ekki látið skemma daginn. Ég lenti í því að sleðinn hjá mér bræddi úr sér, sem varð til þess að ég fékk lánaðan sleða. Þegar ég stökk á hann kom í ljós að hann gekk einungis á einum stimpli. Það ætlaði allt að ganga á afturfótunum og ekki litu hlutirnir vel út en það endaði með að ég mætti á ráslínu á pollanum hans brósa sem er 800 cc og með stóra tankinn sem var stútfullur.
Það var því nokkuð mikil þyngd sem þurfti að berjast við og var það ansi skrautlegt en keppni var kláruðJ
Keppnin var algjör snilld og var samstaðan mikil á svæðinu. Allir hjálpuðust að og var hvatning í fyrirrúmi. Þeir sem héldu keppnina eiga hrós skilið og þakka ég fyrir frábæran dag. Næsta keppni verður á Egilsstöðum er ég best veit og vona ég að Andrea Dögg verði með líka þá. Núna er bara næsta skref að rífa sleðann í spað til að koma honum í gagnið fyrir næstu keppni. Nú er líka komið að ykkur stelpur sem hafa verið að keppa síðustu ár. Um að gera að spýta í lófanna, þurrka rykið af græjunni og vera með á næstu keppni;)
Myndirnar hér að neðan eru úr keppninni af okkur stelpunum.




» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2010 12:56:00 / Kristín

Sýning fyrir norðan síðustu helgi

Hin árlega vetrarsýning var á Akureyri síðustu helgi og var nú ekki annað inni í dæminu en að skella sér á hana;) Við vorum tvær úr Snocrossstelpum (Villa og ég) sem fengum sér bás fyrir sleðana þannig við náðum að gera svolítið skemmtilegt úr þessu.
Það var margt um manninn og vöktu sleðarnir mikla athygli, sérstaklega þar sem þeir komu fram undir Snocrossstelpum og var mjög gaman að því.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2010 08:55:28 / Kristín

Akureyri

Við fórum fjögur til Akureyrar síðustu helgi og fengum þar æðislegt veður og fínt færi. Ekki var mikið um snjóinn í fjallsrótunum en þegar maður var komin aðeins ofar var þetta beautiful:) Nú styttist í keppni og spenningurinn magnast með hverjum deginum. Nú er bara málið að aðrir keppendur láti í sér heyra hérna á spjallinu.

Það má sjá nokkrar myndir úr ferðinni hér að neðan. Þetta var algjör snilld:)


 

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2010 00:48:16 / Villa Dan

Keppnisdagatal 2010 í Snocrossi.

Sælar stúlkur hér kemur þetta.

Snocross keppnisdagatal 2010

      13. febrúar   Íslandsmót   Akureyri
 19-21. mars     Íslandsmót  Mývatn
          17. apríl       Íslandsmót  Egilsstaðir

nánari uppl.um þetta smella hér

Útbúnaður fyrir keppni smella hér

kv.vd


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2010 16:27:15 / Kristín

Myndir frá Snæfellsjökli!

Við vorum fjögur sem skelltum okkur á Snæfellsjökul um helgina til að taka aðeins á því og var markmiðið að sjá hvort allt grúskið í kringum sleðann hafi ekki skilað tilteknum árangri. Þau voru þrjú sem skiptust á að keyra á móti mér þannig það má segja að ég hafi verið alveg búin á því eftir daginn, vægast sagtJ En það er tilgangurinn með þessu öllu saman og vorum við mjög ánægð með daginn. Sleðinn þrælvirkaði og er spenningurinn fyrir fyrstu keppni orðinn ólýsanlega mikill. Stefnt er á að fara til Akureyrar síðar í janúar til að endurtaka leikinn. Það má sjá myndir frá Snæfellsjökli hér fyrir neðan.




» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2010 11:45:25 / Kristín

Allt að gerast;)

Nú er verið að leggja lokahönd á sleðann til að hann sé tilbúinn fyrir keppni. Ég og brósi Sigurþór (Sissi) erum búin að búa í bílskúrnum til að græja allt fyrir seasonið. Ég var að enda við að taka upp búkkann á græjunni og dempararnir komnir í gösun. Þá er bara eftir að púsla öllu saman og koma sér í braut. Stefnt er á æfingaferð norður í næstu viku þar sem engin almennilegur snjór er kominn hérna sunnan.
Það væri frábært að heyra hvað er að gerast hjá öðrum keppendum;)

Það má sjá nokkrar myndir úr skúrnum hér að neðan






» 1 hafa sagt sína skoðun

01.10.2009 20:05:54 / Villa Dan

Snjór á Akureyri..........

Sælar

Það hefur snjóað hér aðeins á Akureyri og gaman væri að heyra í ykkur ,og hverjar ætla að vera með í vetur.

Það er ný stúlka sem er klár í keppnina í vetur,
hún heitir Kristín Elísabet Gunnarsdóttir og verður á Polaris Pro X 440.

Frábært að fá fleiri stelpur inn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2009 19:13:57 / Villa Dan

Tískusýningin var glæsileg... kærar þakkir...

Tískusýningin var alveg glæsileg og margar létu sjá sig til þess að horfa á þennan frábæra viðburð.

Þau sem mættu voru.. Jói Kef, Atli, Diljá, Árni, Villa Dan, Stebbi, Sigrún, Ármann, Svala og Þóra.

Jói Kef meistarinn sjálfur....flott mynd af þessum ungling.:)



Vélsleðinn fyrir framan Gallabuxnabúðina í Kringlunni...sponsor Villu Dan.



Diljá Ofurbomba ....keyrir á Arctic Cat...



Stebbi og Atli...


Fleiri myndir smella hér 

Fyrir hönd Gallabuxnabúðarinnar

Þá viljum við þakka ykkur fyrir frábæra frammistöðu í tískusýningunni og vonandi endurtökum
við þetta á næsta ári.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2009 14:44:26 / snocrossstelpur

Snjókross keppendur í tískusýningu frá Gallabuxnabúðinni.





Þau sem mæta eru

Sigrún Jóna, Diljá, Svala, Hafdís Erna, Ásdís, Signý,Villa Dan, Þóra
Jói Kef, Atli og co, Bjarki ,Hafþór og Árni.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 14:57:53 / Björk

Snocross tímabili er lokið þetta árið


NÚNA UM HELGINA FÓR FRAM 3 OG 4 UMFERÐIN Í SNOCROSSI Á FJARÐARHEIÐI.

OG ÚRSLITIN VORU ÞESSI:



FÖSTUDAGURINN 24.APRÍL

1.   VILBORG DANÍELSDÓTTIR ..... ARCTIC CAT
2.   SIGRÚN JÓNA SIGURPÁLSDÓTTIR ..... ARCTIC CAT 
3.     ANDREA DILJÁ ÓLAFSDÓTTIR.....  ARCTIC CAT

LAUGARDAGUIRNN 25.APRÍL

1.   VILBORG DANÍELSDÓTTIR....ARCTIC CAT
2.   ANDREA DILJÁ ÓLAFSDÓTTIR....ARCTIC CAT
3.   SIGRÚN JÓNA SIGURPÁLSDÓTTIR....ARCTIC CAT

ÍSLANDSMEISTARI Í KVENNAFLOKK
VILBORG DANÍELSDÓTTIR


SVO SKELLTU STELPURNAR SÉR VIÐ HLIÐINÁ VIKTOR STENMAN HINUM EINA SANNA....BESTI ÖKUMAÐUR MÓTSINS

SIGRÚN, VILLA DAN, VIKTOR STENMAN OG DILJÁ


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 22:23:43 / snocrossstelpur

Þessar eru klárar á ráslínu


Þessar stúlkur eru klárar á ráslínu í 3 og 4 umferðina sem fram fer á Fjarðarheiðinni við Egilsstaði dagana 24 og 25 apríl.


Andrea Diljá Ólafsdóttir........  Team Arctic.....  Arctic Cat 600
Sigrún Jóna Sigurpálsdóttir... Go Green ........Arctic Cat 440
Vilborg Daníelsdóttir....  ........Team Arctic  ......Arctic Cat 440

Styrktaraðilar Diljá:

Pabbi

Andrea Diljá # 69


Styrktaraðilar Sigrúnar

Ískraft

Sigrún Jóna # 80
photo

Styrktaraðilar Villu Dan:

Gallabuxnabúðin, Líkamsræktin Bjarg einkaþjálfari Ólafur, Skiltagerð Norðurlands, Blikkrás, Straumrás, Stjörnusól, Team Arctic,og  Húsbóndinn,

Villa Dan # 12

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2009 17:48:25 / Villa Dan

3 og 4 umferðin í Snocrossi að hefjast


Sælar

Nú styttist óðum í 3 og 4 umferðina hjá okkur sem haldin verður á Egilsstöðum nánar Fjarðarheiði dagana 24 og 25 apríl.

Ég vil minna á skráninguna sem lýkur núna á þriðjudagskvöldið.inná http://msisport.is

Hverjar ætla að koma

ég vil gjarnan fá að sjá ykkur sem ég veit að eiga eða geta sennilega reddað sér vélseða

Hulda Þorgilsdóttir
Arna Baldvinsdóttir
Sigrún Ragna Rafnsdóttir
Andrea Diljá Ólafsdóttir
Sigrún Jóna Sigurpálsdóttir
Erna María Halldórsdóttir
Berglind Ósk Guttormsdóttir
 
Og ef það eru einhverjar fleiri sem hafa áhuga á þessu og hafa vélsleða endilega hafa samband við mig í síma 899-6290 Villa Dan.

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.04.2009 10:19:08 / Villa Dan

Carly Davis



Hér er ein alveg svakalega góður keyrari og hún heitir Carly Davis aðeins 18 ára og er í liði Christian Brothers sem gera út á Arctic Cat..... smella hér

Hér vann hún 1.sætið í meistaraflokk kvenna..... Duluth Minnesota.

Carly Davis Arctic Cat



Kylie Abrahamson, Carly Davis and JC Hupe.

Úrslit í meistaraflokk kvenna.

  

1

Carly Davis

Christian Brothers

 

2

Kylie Abrahamson

Avalanche Racing

 

3

JC Hupe

Animal Racing

 

4

Sarah McQuestion

WRENCH & RACE

 

5

Angela Vacchino

Team Shoreline Racing

 

6

April Moritz

Moritz Racing

 

7

Lina Kaasalainen

 

 

8

Christina Herheim

triple H & J racing

 

9

Taylor Carlson

Sportech Factory Racing

 

10

Kendra Daniel

CMR Racing

 

11

Katie Baxter

No Limits Racing

 

12

Kailee Hass

stickerdude motorsports


Svo er það hún Lina Kaasalainen á Ski-doo frá Svíþjóð sem lendir í 7.sæti.
til að sjá nánar úrslit smella hér

Svo á hún Carly Davis líka systur sem heitir Cory Davis sem er 20 ára og er í Slednecks liðinu.
Ekki er langt að sækja þetta þar sem faðir þeirra er Scott Davis sjöfaldur meistari í Iron Dog keppni sem er fjallarall og keyrðar allt uppí rúmar 1.700 mílur
sjá kort nánar smella hér


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2009 20:49:53 / Villa Dan

Snjóspyrnarn verður ekki.....

Sælar

Snjóspyrnan verður ekki þetta árið,þannig við verðum bara með næst.

En ég vil nú samt hvetja ykkur til þess að mæta á Egilsstaði í lokakeppnina í snocrossinu  sem haldin verður þessa helgi sem hér segir.... fösudaginn 24.apríl kl.17:00 og Laugardaginn 25.apríl kl.13:00.
Og verður það nánar auglýst þegar nær dregur.ekki verra væri ef við verðum aftur fjölmennasti flokkurinn.

Hverjar ætla á vélsleða núna um páskana?látið mig vita og reynum að fara annað hvort uppá dal eða Kaldbak.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  19  Alls: 44131
Könnun
Á að nýta jöklana í sumar?
Já að sjálfsögðu
3 atkvæði

Veit ekki
0 atkvæði

Nei, ég held ég verði róleg/ur
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 3
RSS tengill